FÓLKIÐ Á BAK VIÐ PLANIÐ

UM OKKUR.

OKKAR SAGA

Frá bekkjarfélögum í fyrirtækjarekstur

Eigendur Plan A eru þeir Elvar Ásmundsson og Fróði Reyr Hákonarson. En þeir voru bekkjarfélagar á stafrænni viðskiptalínu í Verzlunarskóla Íslands þar sem vinskapur þeirra myndaðist löngu áður en hugmyndin að fyrirtæki kviknaði. Á þeim tíma var Plan A fjarlægur draumur, en sameiginlegur áhugi á markaðsmálum, sköpun og því að byggja eitthvað upp frá grunni er það sem gerði það að verkum að Plan A sé á þeim stað sem það er í dag.

Þrátt fyrir að koma úr ólíkum áttum eiga strákarnir eitt sameiginlegt sem hefur mótað þá meira en flest annað: bakgrunn í íþróttum. Þar lærðu þeir snemma hvað þarf til að skara fram úr: aga, úthald og rótgróið keppnisskap sem lætur mann aldrei sætta sig við meðalmennsku. Þennan sama hugsunarhátt taka þeir beint inn í reksturinn: hvert verkefni er meðhöndlað eins og leikur sem á að vinna, og árangur viðskiptavina er alltaf lokamarkmiðið.

Elvar til vinstri og Fróði til hægri við útskrift úr Verzlunarskóla Íslands
„Hvert verkefni er meðhöndlað eins og leikur sem á að vinna.“

Fyrirtæki sem hafa unnið með okkur

NÆSTA SKREF ER EINFALT

GERUM EITTHVAÐ
GOTT SAMAN.

Segðu okkur frá þínu fyrirtæki.
Við komum með planið.

Bóka fría ráðgjöf (opnast í nýjum flipa)